Vetrardagskrá Heilunarskólans er nú komin inná síðuna undir linknum Dagskrá hér fyrir ofan og verður hún að mestu leyti með hefðbundnum hætti.
Þó eru nokkrar breytingar og eru þær helstar að kennd verða 2 – 3 framhaldsnámskeið í vetur. Fyrst er að telja framhaldsnámskeið í Tarot og verður þá farið dýpra í spilin auk meiri þjálfunar í lestrum. Framhaldsnámskeið verður svo í Miðlun eftir áramót og er líklegt að erlendur gestakennari kenni það námskeið og síðast en ekki síst verður Transþjálfunarhópur starfandi í vetur. Hann veður settur saman af nemendum Heilunarskólans sem lokið hafa Transnámskeiði hjá skólanum, en einnig er hugsanlega hægt að bæta örfáum einstaklingum við sem hafa einhverja reynslu af Transvinnu.
Kyrrðardagar verða einnig á dagskrá í vetur og er þegar fullbókað á Kyrrðardaga í nóvember. Stefnt er að því að hafa aðra Kyrrðardaga eftir áramót ef nægt þátttaka næst.
Rúsínan í pylsuendanum er síðan sú, að hafa Hugleiðslunámskeið fyrir unglinga frá 14 til 20 ára, en þessi hópur er mjög leitandi og hefur verið talsvert um fyrirspurnir um það hvort eitthvað prógram sé til fyrir þennan aldurshóp.
Hugmyndin er sú að hafa þetta námskeið í janúar ef næg þátttaka næst, og jafnvel að hafa áframhaldandi starf í vetur þar sem hópurinn hittist 1. sinni til 2var í mánuði í einskonar Þróunarhóp, sem yrði þó meira í kennsluformi en sem hefðbundinn Bæna og þróunarhringur.
Það væri því vel þegið að fá viðbrögð frá ykkur sem lesið þessar línur, um það hvað ykkur finnst um þessa hugmynd.
Endilega hafið samband til að fá frekari upplýsingar og til að skrá ykkur í Heilunarskólann á emailin og símanr. hér fyrir neðan.
email: sigrun@heilunarskolinn.is skraning@heilunarskolinn.is
sími: 5551727